Enski boltinn

Akinfenwa fékk hrós frá Steinari

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hrikalegir. Steinar grípur stundum í glímuna en Akinfenwa er búinn að færa hana út á fótboltavöllinn.
Hrikalegir. Steinar grípur stundum í glímuna en Akinfenwa er búinn að færa hana út á fótboltavöllinn. vísir/getty
Sterkasti knattspyrnumaður heims, Adebayo Akinfenwa, fékk hrós frá einni stærstu kvikmyndastjörnu heims, Dwayne „The Rock“ Johnson, eftir frammistöðu sína um síðustu helgi.

Akinfenwa skoraði þá fyrir lið sitt, Wycombe Wanderers, og fagnaði marki sínu á skemmtilegan hátt. Hann beitti wrestling-bragði sem er kallað „People's elbow“ og var vörumerki The Rock, eða Steinars eins og hann er kallaður hér á landi, á sínum tíma.

„Geggjaður olnbogi. Vel gert bróðir,“ skrifaði Steinar á Twitter.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×