Vilja losna við forsetann Jón Hákon Halldórsson skrifar 8. ágúst 2017 06:00 Mótmælendur í Suður-Afríku gengu á götum úti um helgina til þess að mótmæla forsetanum, Jacob Zuma. Þeir kröfðust þess að Zuma segði af sér embætti. vísir/epa
Þingmenn í Suður-Afríku munu greiða nafnlaust atkvæði um vantrauststillögu á Jacob Zuma, forseta landsins. Þetta hefur Baleka Mbete, forseti þingsins, tilkynnt. Stjórnarandstæðingar lögðu fram vantraust á forsetann. Þeir telja að í leynilegri atkvæðagreiðslu muni þingmenn úr flokki forsetans, Afríska þjóðarráðinu, þora að styðja tillöguna. BBC-fréttastofan segir að Zuma hafi nokkrum sinnum fengið á sig vantrauststillögur en alltaf staðið þær af sér. Afríska þjóðarráðið, flokkur Zuma, hefur stjórnað í Suður-Afríku allt frá því að aðskilnaðarstjórnin lét af völdum árið 1994 og hefur flokkurinn ríflegan meirihluta þingmanna á þinginu. Fréttaritari BBC í Suður-Afríku segir að ákvörðunin um leynilega atkvæðagreiðslu hafi komið á óvart. Nú sé spurningin hvort nógu margir þingmenn Afríska þjóðarráðsins séu reiðubúnir til að taka afstöðu gegn Zuma. Að minnsta kosti 50 af 249 þingmönnum flokksins þyrftu að greiða atkvæði gegn forsetanum til að hún yrði samþykkt. Talsmenn Afríska þjóðarráðsins segja að vantrauststillagan sé pólitískt leikrit sem sé ætlað að losna við ríkisstjórnina án þess að til almennra kosninga þurfi að koma. Forseti landsins hefur verið umdeildur eftir að hann rak fjármálaráðherrann, Pravin Gordhan, úr embætti og gerði fleiri breytingar. Zuma hefur einnig verið sakaður um spillingu og er sakaður um að hafa gerst of handgenginn Gupta-fjölskyldunni, en sú fjölskylda hefur oft verið grunuð um að seilast til pólitískra áhrifa. Bæði Jacob Zuma og Gupta-fjölskyldan hafa neitað því að hafa aðhafst eitthvað rangt.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Fleiri fréttir Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Sjá meira