Fótbolti

Rúnar rekinn frá Lokeren

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rúnar Kristinsson.
Rúnar Kristinsson. Vísir/Getty
Rúnar Kristinsson var í dag rekinn sem þjálfari belgíska úrvalsdeildarfélagsins Sporting Lokeren‏. Rúnar var þjálfari liðsins í aðeins níu mánuði.

Peter Maes mun taka við starfi Rúnars en hann var þjálfari Lokeren frá 2010 til 2015. Peter Maes hefur þegar skrifað undir þriggja ára samning. Maes verður kynntur fyrir blaðamönnum á morgun klukkan 17.00 að belgískum tíma. Þetta kemur allt fram á heimasíðu Lokeren.

Rúnar tók við liði Lokeren af Georges Leekens 28. október 2016. Hann var því búinn að vera með liðið í rúma níu mánuði.

Á heimasíðu Sporting Lokeren‏ er haft eftir forseta félagsins að Rúnari hafi skilað góðu starfi á síðustu leiktíð. Það sé honum að þakka að liðið náði að halda sér í deildinni. Félagið þakkar Rúnari fyrir sitt starf og vonast til að hann haldi áfram þjálfaraferli sínum.

Sporting Lokeren er búið að spila tvo leiki á þessu tímabili og liðið tapaði þeim báðum. Lokeren á enn eftir að skora fyrsta mark tímabilsins en markatalan er 0-5 eftir 1-0 tap á móti KV Kortrijk og 4-0 tap á móti Club Brugge. Tapleikurinn á móti KV Kortrijk var síðasti leikurinn undir stjórn Rúnars.

Þetta er í annað skiptið á innan við ári sem Rúnar missir starfið sitt sem knattspyrnuþjálfari en hann var látinn fara sem þjálfari norska félagsins Lilleström um miðjan september 2016 eða fyrir tæpum ellefu mánuðum síðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×