Formúla 1

Sebastian Vettel vann í Ungverjalandi

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Sebastian Vettel vann sína fjórði keppni í dag.
Sebastian Vettel vann sína fjórði keppni í dag. Vísir/Getty
Sebastian Vettel á Ferrari kom fyrstur í mark í ungverska Formúlu 1 kappakstrinum. Kimi Raikkonen varð annar á Ferrari og Valtteri Bottas á Mercedes varð þriðji.

Munurinn í stigakeppni ökumanna er þá orðin 14 stig fyrir sumarfríið. Lewis Hamilton var þriðji þangað til í síðustu beygju þegar hann hleypti Bottas fram úr til að gjalda tækifærið sem Bottas veitti Hamilton fyrr í keppninni.

Daniel Ricciardo lenti í samstuði við liðsfélaga sinn. Glussi úr bíl Ricciardo úðaðist á stóran kafla á brautinni og öryggisbíllinn var kallaður út. Ricciardo var úr leik strax á fyrsta hring.

Að örðu leyti breyttist staða fremstu manna ekki mikið í ræsingunni. Lewis Hamilton á Mercedes missti Max Verstappen fram úr sér. Hamilton var þá orðinn fimmti.

Öryggisbíllinn kom inn við lok fimmta hrings. Hamilton reyndi hvað hann gat til að skjóta sér fram úr Verstappen strax í endurræsingunni en Hollendingurinn ungi varðist vel.

Lewis Hamilton á Mercedes heiðraði samkomulag sitt við Bottas og Mercedes og hleypti liðsfélaganum fram úr undir lokin.Vísir/Getty
Romain Grosjean á Haas féll úr leik á 23. hring. Hann hafði komið inn á þjónustusvæðið til að skipta um dekkjagang, það var að leka úr einu dekkinu. Vinstra afturdekkið sem sett var undir var ekki fest almennilega og danglaði undir bílnum. Grosjean neyddist því til að stöðva.

Hamilton kom inn á hring 32 til að fá nýjan dekkjagang undir, hann kom út á brautina áfram í fimmta sæti. Vettel kom svo inn á 33. hring. Vettel kom út á brautina í öðru sæti á eftir Verstappen sem átti eftir að stoppa. Raikkonen kom svo inn í kjölfarið og kom út rétt á eftir Vettel.

Mercedes menn með Bottas í fararbroddi sóttu að Ferrari mönnum um miðbik keppninnar. Vettel var að glíma við skekkju í stýrinu.

Raikkonen var ítrekað að kvarta yfir liðsfélaga sínum hjá Ferrari. Finnanum fannst Vettel aka of hægt og vera að færa sig niður í gin ljónsins sem var Bottas á Mercedes.

Verstappen kom loksins inn á 42. hring og tók þjónustuhlé. Hann tók í leiðinni út 10 sekúndna refsingu fyrir að aka liðsfélaga sinn út úr keppninni. Vettel tók þá aftur við forystu í keppninni.

Hamilton var hreinlega hleypt fram úr Bottas í upphafi 45. hring. Hamilton var ætlað að sækja á Ferrari. Samningurinn var að Hamilton léti aftur stöðuna til Bottas ef Hamilton næði ekki fram úr Raikkonen. Bottas fékk að fara fram úr Hamilton aftur í síðustu beygjunni.

Hamilton reyndi að ógna Raikkonen en allt kom fyrir ekki. Ferrari menn héldu haus undir pressu.


Tengdar fréttir

Daniel Ricciardo fljótastur á föstudegi

Daniel Ricciardo á Red Bull var fljótastur á báðum æfingum dagsins fyrir ungverska kappaksturinn sem fram fer um helgina. Uppfærslurnar á Red Bull bílnum greinilega að virka vel.

Sebastian Vettel á ráspól í Ungverjalandi

Sebastian Vettel á Ferrari var fljótastur í tímatökunni fyrir Formúlu 1 kappaksturinn sem fram fer í Ungverjalandi á morgun. Kimi Raikkonen á Ferrari varð annar og Valtteri Bottas á Mercedes þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×