Fótbolti

Fyrsti sigur tímabilsins í höfn hjá Birni Daníel og félögum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Björn Daníel Sverrisson í leik með AGF.
Björn Daníel Sverrisson í leik með AGF. Vísir/Getty
Björn Daníel Sverrisson og félagar í AGF eru komnir á blað í dönsku úrvalsdeildinni eftir 2-0 heimasigur á Hobro í fyrsta leik annarrar umferðar dönsku úrvalsdeildarinnar.

AGF tapaði 2-1 á heimavelli á móti Horsens í fyrstu umferðinni og það var því mikilvægt að ná í stig í kvöld enda ekki gott að vera stigalaust eftir tvo heimaleiki.

Björn Daníel lék fyrstu 86 mínútur leiksins en var tekinn útaf í stöðunni 1-0.

Morten Rasmussen kom AGF í 1-0 strax á 2. umferð en seinna markið skoraði varamaðurinn Mustapha Bundu tveimur mínútum fyrir leikslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×