Enski boltinn

Chelsea sigraði Arsenal í Peking

Elías Orri Njarðarson skrifar
Michy Batshuayi skoraði tvö mörk fyrir Chelsea í dag
Michy Batshuayi skoraði tvö mörk fyrir Chelsea í dag visir/getty
Arsenal og Chelsea mættust í vináttuleik í Peking í dag.

Byrjunarliðin hjá báðum liðum voru sterk og búist var við hörkuleik. Leikurinn var jafn framan af en það var ekki fyrr en á 40. mínútu þegar Willian kom Chelsea yfir eftir flott samspil við Michy Batshuayi.

Tveimur mínútum síðar var Batshuayi sjálfur á ferðinni þegar að hann bætti öðru marki Chelsea við eftir að hafa fengið stungusendingu frá N'golo Kante.

Fleiri voru mörkin ekki í fyrri hálfleiknum og fóru því leikmenn Chelsea með gott forskot inn í þann seinni.

Batshuayi bætti svo sínu öðru marki við á 49. mínútu og þriðja marki Chelsea eftir að Marcus Alonso hafði lagt boltann út í teiginn og Batshuayi kláraði færið vel.

Hvorugt liðanna bættu fleiri mörkum við þrátt fyrir að hafa fengið færi til þess.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×