Morðin í Gautaborg: Faðirinn grunaður um morð á konu sinni og þremur börnum Atli Ísleifsson skrifar 22. júlí 2017 13:54 Maðurinn var giftur konunni, sem var 35 ára, og faðir allra barnanna sem voru á aldrinum tveggja til átta ára. Vísir/EPA
Dómstóll í Svíþjóð hefur dæmt 51 árs gamlan karlmann í gæsluvarðhald vegna gruns um að hafa orðið eiginkonu sinni og þremur börnum að bana í Angered fyrir utan Gautaborg á fimmtudag. Fólkið fannst eftir að tilkynnt var um eld í íbúðinni. Þar fundust konan og eitt barnanna látin. Hin börnin tvö létust í sjúkrabíl á leiðinni á sjúkrahús og á sjúkrahúsi. Áverkar fundust á líkum fólksins sem varð til þess að lögreglu grunaði að þau hafi ekki látist í brunanum. Karlmaðurinn, sem er bosnískur ríkisborgari, neitar sök í málinu.Aftonbladet segir frá því að sama dag og fólkið fannst látið hafi átt að vísa fjölskyldunni úr íbúðinni. Hafi hún verið stórskuldug og ekki greitt leigu af íbúðinni í tvö ár. Lögmaður mannsins kveðst undrandi á dómnum og segir skjólstæðing sinn hafa greint nákvæmlega frá ferðum sínum umræddan morgun. Kveðst hann hafa verið á vinnustað sínum þegar eldurinn kom upp. Maðurinn var giftur konunni, sem var 35 ára, og faðir allra barnanna sem voru á aldrinum tveggja til átta ára. Lögregla færði manninn til yfirheyrslu eftir að sást til hans í grennd við íbúðina á fimmtudagsmorgninum. Var hann upphaflega ekki grunaður um verknaðinn, en eftir því sem rannsókn hefur miðað áfram hafa grunsemdir aukist um að hann hafi banað fjölskyldu sinni og kveikt í.
Tengdar fréttir Kona og þrjú börn létust eftir eld í íbúð í Gautaborg Lögregla greinir frá því að svo virðist sem að fólkið hafi verið beitt ofbeldi áður en eldurinn kom upp. 20. júlí 2017 08:38 Mest lesið Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Leitin enn ekki borið árangur Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Fleiri fréttir Íransforseti fórst í þyrluslysinu Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Sjá meira
Kona og þrjú börn létust eftir eld í íbúð í Gautaborg Lögregla greinir frá því að svo virðist sem að fólkið hafi verið beitt ofbeldi áður en eldurinn kom upp. 20. júlí 2017 08:38