Fótbolti

„Finnst ég standa einn í storminum“

Tómas Þór Þórðarson í Ermelo skrifar
Freyr Alexandersson á blaðamannafundinum í dag.
Freyr Alexandersson á blaðamannafundinum í dag. vísir/tom
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, segist ekki geta barist lengur einn fyrir því að U23 ára landslið verði sett á laggirnar.

Freyr sat fyrir svörum á blaðamannafundi þjálfarateymisins á æfingasvæði Íslands í dag og var þar meðal annars spurður út í framtíðina með liðið og hvernig hægt sér að styrkja umgjörðina.

Ekki er keppt í U21 árs landsliðum hjá konum þannig þær fara beint úr U19 ára landsliði í A-landslið. Lengi hefur verið kallað eftir því að vera með U23 ára landslið til að brúa bilið fyrir efnilega leikmenn áður en þeir komast í A-landsliðið.

„Ég get ekki barist meira fyrir þessu. Ég er búinn að leggja mikla áherslu á þetta en mér finnst ég standa einn í storminum. Þetta snýst á endanum um íslenskan fótbolta. Ég er bara landsliðsþjálfari,“ sagði Freyr.

„Ef við viljum ná lengra sem fótboltaþjóð þurfa félögin að styðja þessa tillögu og stjórn KSÍ að taka ákvörðun. Þetta þarf væntanlega að fara í gegnum ársþing.“

„Ég er búin að lýsa yfir vilja mínum alltof oft og Sigurður Ragnar Eyjólfsson gerði það líka. Ég veit að við þurfum á þessu að halda til að brúa bilið og hjálpa leikmönnum að þroskast. Ég get samt ekki verið í baráttu um þetta einn,“ sagði Freyr en hvað er það sem stendur í vegi fyrir þessu?

„Þetta kostar peninga og þeim ræð ég ekki yfir,“ sagði Freyr Alexandersson.

Upptöku frá fundinum má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Enn þá skrefi á eftir þeim bestu

Stelpurnar okkar eru úr leik á EM. Skelfilegur laugardagur sá um það þar sem Ísland tapaði fyrir Sviss og fékk svo engan greiða frá Frakklandi. Litlu hlutirnir féllu ekki með Íslandi sem tapaði fyrir betri liðum.

Endurfundir í Hollandi

"Hann er stuðningsmaður Íslands,“ segir Brynjar Svansson, faðir Dagnýjar Brynjarsdóttur, sem er duglegur að klæða Hollendinga í bláar landsliðstreyjur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×