Fótbolti

Stelpurnar kveðja Eremelo „í tárum“ og halda til Rotterdam

Kolbeinn Tumi Daðason í Rotterdam skrifar
Stelpurnar hafa haft það gott í Ermelo. Hérna fara Hólmfríður, Agla María og Sandra María yfir málin.
Stelpurnar hafa haft það gott í Ermelo. Hérna fara Hólmfríður, Agla María og Sandra María yfir málin. Vísir/Tom
Kvennalandslið Íslands mætir til æfinga í hafnarborginni Rotterdam í dag þar sem liðið gistir næstu tvær nætur. Liðið æfir á Spörtu leikvanginum í Rotterdam síðdegis í dag.

Stelpurnar eru afar virkar á Instagram og þar hefur hver leikmaðurinn á fætur öðrum birt stutt myndskeið eða myndir þar sem hótelið í Ermelo er kvatt með tárum. 

Bein útsending frá blaðamannafundi íslenska liðsins verður á Vísi klukkan 15:15 að íslenskum tíma. Þar munu Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari, Sara Björk Gunnarsdóttir landsliðsfyrirliði og Ingibjörg Sigurðardóttir miðvörður sitja fyrir svörum.

Í framhaldinu æfir liðið á fyrrnefndum leikvangi Spörtu þar sem leikurinn gegn Austurríki fer fram annað kvöld. Leikvangurinn tekur um 11 þúsund manns í sæti, er 101 árs gamall en miklar endurbætur voru gerðar á honum árið 1999.

Ekki missa af neinu tengdu stelpunum okkar á EM 2017 í Hollandi. Íþróttadeild 365 er með öflugt teymi fréttamanna á mótinu og færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af íslenska liðinu. Fylgdu okkur á Facebook og Twitter.



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×