Innlent

Landhelgisgæslan svarar neyðarkalli frá bandarískri skútu

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Varðskipið Þór er einnig á leið á staðinn.
Varðskipið Þór er einnig á leið á staðinn. Vísir/Anton
Skip landhelgisgæslunnar er nú á siglingu í átt að bandarískri skútu, sem sendi boð úr neyðarsendi sínum um klukkan hálf fimm í nótt. Í fréttatilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að rannsóknarskipið Árni Friðriksson verði komið á staðinn hvað úr hverju.

Í tilkynningunni segir að um klukkan hálf fimm í nótt hafi stjórnstöð Landhelgisgæslunnar borist boð úr neyðarsendi djúpt suðvestur af landinu, skammt utan við íslensku lögsögumörkin.

Nánari eftirgrennslan leiddi í ljós sendirinn tilheyrði bandarískri skútu. Kveikt var á sendinum handvirkt og því full ástæða til að ætla að þarna væri alvara á ferð. Rannsóknaskipið Árni Friðriksson var í þrjátíu sjómílna fjarlægð frá staðsetningu sendisins og óskaði því stjórnstöð eftir því að hann færi þegar í stað á vettvang. Búist er við að hann verði kominn á svæðið þá og þegar.

Að því er skipstjórnarmenn um borð í Árna Friðrikssyni segja er þungur sjór á svæðinu en skyggni ágætt. Þá er varðskipið Þór, sem er við eftirlit suður af landinu, á leið á staðinn en það á talsverða siglingu framundan.

Uppfært klukkan 08:51:

Áhöfn rannsóknarskipsins Árna Friðrikssonar, sem á skamma leið ófarna að staðsetningu neyðarsendisins, sér nú í ratsjá merki sem líkur eru á að sé bandarísk skúta sem sendirinn tilheyrir. 

Flugvél Isavia hefur einnig verið kölluð út en hún er búin nákvæmum miðunarbúnaði. Búist er við því að hún fari í loftið um klukkan níu og verði komin á vettvang um klukkustund síðar.

Þá hefur Challenger, eftirlitsflugvél danska flughersins í Kangerlussuaq á Grænlandi, verið kölluð út. Von er á henni á vettvang eftir um tvær klukkustundir.

Uppfært klukkan 09:58:

Í fyrstu tilkynningum frá Landhelgisgæslunni sagði að neyðarboðin frá bandarísku skútunni hefðu borist stjórnstöð Landhelgisgæslunnar klukkan hálf fjögur í nótt. Þau reyndust hins vegar hafa borist um klukkan hálf fimm. Fréttin hefur verið uppfærð í samræmi við þessar upplýsingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×