Lífið

Simone Biles kafdópuð eftir endajaxlatöku

Stefán Árni Pálsson skrifar
Deyfing fer ekki vel í alla.
Deyfing fer ekki vel í alla.
Bandaríska fimleikadrottningin Simone Biles lét fjarlægja endajaxla á dögunum og var hún því deyfð af tannlækninum.

Deyfingin fór einkennilega í þessa bestu fimleikakonu heims og endaði hún í raun alveg kafdópuð. Hún hélt til að mynda að hún væri að keyra trukk og ýti á ímyndaða flautu.

Myndband af þessari skemmtilegu reynslu má sjá hér að neðan. Biles vann fjögur gullverðlaun á Ólympíuleikunum í Ríó á síðasta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×