Hryðjuverk eða misheppnað rán? Samúel Karl Ólason skrifar 28. júlí 2017 19:45 Fjölmargir vopnaðir lögregluþjónar eru á svæðinu. Vísir/EPA
Einn er látinn og fjórir særðir eftir að maður vopnaður hnífi réðst á aðra í matvöruverslun í Hamborg í dag. Árásarmaðurinn mun hafa verið einn að verki og hefur verið handtekinn en lögreglan segir of snemmt að segja til um hvert tilefni árásarinnar var. Almennir borgarar yfirbuguðu árásarmanninn, en óvíst er hvort að um hryðjuverk hafi verið að ræða eða misheppnað rán.Samkvæmt frétt BBC hafa borist óstaðfestar fregnir af því að maðurinn hafi öskrað: „Allahu akhbar“, eða „Guð er mikill“. Þá hafa einnig borist fregnir af því að um misheppnað rán sé að ræða. Lögreglan segir árásarmanninn heita Ahmed A. og vera 26 ára gamlan. Hann er hælisleitandi sem haldið hefur til í Hamborg. Ekki hafa fundist vísbendingar um tilefni árásarinnar.Talið er að maðurinn hafi verið vopnaður venjulegum hnífi sem fyrirfinnst í hverju eldhúsi. Hann réðst á fólk af handahófi inn í versluninni og hljóp svo út þar sem hann var yfirbugaður. Maðurinn sem dó var 50 ára gamall og þau sem særðust voru á aldrinum 19 til 64. Mikið er um vopnaða lögregluþjóna á svæðinu og munu sérsveitarmenn vera meðal þeirra. Nokkrar hryðjuverkaárásir hafa verið gerðar í Þýskalandi á síðustu árum og áætlar leyniþjónusta Þýskalands að um tíu þúsund öfgamenn séu í landinu. Þar ef séu 1.600 sem teljast líklegir til að grípa til ofbeldis, samkvæmt frétt The Local.Um jólin ók maður í gegnum jólamarkað í Berlín og myrti tólf. Íslamska ríkið lýsti yfir ábyrgð á árásinni. Samtökin lýstu einnig yfir ábyrgð á tveimur öðrum árásum í fyrra. Í annarri særðust fimmtán í sprengjuárás í Ansbach og í hinni særði árásarmaður fimm með exi í lest í Bæjarlandi. Sá var svo skotinn til bana af lögreglu.Uppfært 19:45: Upplýsingum bætt við um uppruna árásarmannsins og fórnarlömbin.
Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Óljóst hvort þyrlan sé fundin Erlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Fleiri fréttir Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Sjá meira