Erlent

Birtu myndband af handtöku Shia LeBeouf

Samúel Karl Ólason skrifar
Shia LeBeouf er 31 árs gamall.
Shia LeBeouf er 31 árs gamall.
Lögreglan í Savannah í Bandaríkjunum hefur birt myndband af handtöku leikarans Shia LeBeouf þann 8. júlí. Á myndbandinu má sjá og heyra leikarann hóta lögregluþjónum, blóta þeim og stæra sig af því hvað hann þekkir ríka lögfræðinga. Hann segir ítrekað að verið sé að brjóta á rétti hans sem Bandaríkjamanni.

Lögreglan segir hann hafa gengið upp að ókunnugri konu og lögregluþjóni og beðið um sígarettu um klukkan fjögur að nóttu til. Eftir að hann fékk ekki sígarettu brást hann reiður við og blótaði konunni í sand og ösku.

Þá segir lögreglan að þegar lögregluþjónninn hafi skipað honum að fara hafi hann neitað og ógnað lögregluþjóninum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem LeBeouf kemst í kast við lögin.

LeBeouf er í Savannah við tökur á sinni nýjustu mynd, The Peanut Butter Falcon.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×