Telur að Bretland geti verið hluti af Evrópusambandinu án þess að taka þátt í frjálsu flæði vinnuafls Ingvar Þór Björnsson skrifar 15. júlí 2017 16:26 Tony Blair telur að Bretar þurfi að endurskoða úrsögn sína úr Evrópusambandinu. Vísir/AFP
Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, telur að möguleiki sé að eiga aðild að Evrópusambandinu án þess að taka þátt í frjálsu flæði fólks sem hefur lengi verið eitt af grundvallaratriðum aðildar. Þetta sagði hann í viðtali við BBC í morgun.Tony Blair nefndi að önnur aðildarríki deili áhyggjum Breta í innflytjendamálum og væru ef til vill tilbúin í málamiðlanir. Nefnir hann sérstaklega Frakka og Þjóðverja í því samhengi.Blair telur einnig að mikill vilji sé fyrir breytingum hvað varðar almannatryggingar og breytingar sem snúa að þeim sem koma til Evrópu án atvinnu. „Tími umbóta er að hefjast í Evrópu. Út frá viðræðum mínum við evrópska leiðtoga get ég sagt að áhugi er fyrir breytingum sem gætu komið til móts við Bretland. Þar með talið í málefnum frjáls flæðis fólks,“ segir Blair.Blair nefndi einnig að aðstæður í Evrópu væru frábrugðnar þeirri stöðu sem var uppi þegar gengið var til kosninga. Nefndi hann sérstaklega kosningasigur Macron og hans flokks. „Ég lofa því ekki að það sé hægt að semja um þessi mál, ég er einfaldlega að segja að það sé möguleiki á að Bretland gæti orðið hluti af breyttu Evrópusambandi,“ segir Blair.Í síðustu viku sagði Michel Barnier, aðalsamningamaður Evrópusambandsins í Brexit viðræðunum, að ekki væri hægt að semja um frjálst flæði fólks, varnings, þjónustu og fjármagns. Bretland hefur áður samið um undanþágur frá samningum Evrópusambandsins með misgóðum árangri. Cameron reyndi til að mynda að semja um frjálst flæði vinnuafls fyrir Brexit-kosningarnar og tryggði hann Bretum réttindi til að takmarka greiðslur til atvinnubóta. Ekki var þó staðið við loforð Íhaldsflokksins um takmarkanir á kröfum til að senda barnabætur erlendis. Einnig tókst ekki að semja um að gera erlent vinnuafl frá ríkjum ESB ekki gjaldgengt í umsóknum til velferðabóta.
Mest lesið Leitin enn ekki borið árangur Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Fleiri fréttir Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar Sjá meira