Sport

Gleymdi að minnast á fótboltastelpurnar í viðtali eftir bardagann

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sara Björk færir Sunnu íslenska landsliðsbúninginn.
Sara Björk færir Sunnu íslenska landsliðsbúninginn. MYND/MJÖLNIR.IS/SÓLLILJA BALTASARSDÓTTIR
Sunna Rannveig Davíðsdóttir gekk inn í búrið í Kansas í íslensku landsliðstreyjunni sem stelpurnar í íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta færðu henni að gjöf á dögunum.

Stelpurnar okkar fóru þá á æfingu hjá Mjölni og fengu kennslu hjá Sunnu. Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir færði Sunnu og dóttur hennar svo áritaða landsliðstreyju.

Sunna ætlaði að nýta tækifærið eftir bardagann við Kelly D'Angelo á laugardaginn og kasta kveðju á stelpurnar í landsliðinu en það gleymdist í geðshræringunni.

„Í viðtalinu eftir bardagann ætlaði ég að minnast á þær og hvetja þær. En strákarnir gleymdu að rétta mér treyjuna aftur og ég gleymdi að minnast á þær. Draumurinn var að hvetja þær í treyjunni,“ sagði Sunna sem hefur mikla trú á Íslandi á EM.

„Ég veit að þær eru að fara að standa sig ógeðslega vel. Þetta eru ótrúlega flottar stelpur sem gáfu mér flotta hvatningu áður en ég fór í bardagann. Ég hef fulla trú á þeim og veit að þær hafa allt að bera til að fara alla leið,“ sagði Sunna sem verður límd við sjónvarpið þegar Ísland mætir Frakklandi annað kvöld.

„Engin spurning. Dóttir mín er mikið í fótbolta, þær gáfu henni treyju og hún ætlar bara í landsliðið þegar hún verður aðeins eldri. Við munum hvetja þær til dáða.“

mynd/mjolnir.is/sóllilja baltasarsdóttir

Tengdar fréttir

Ef dyrnar hjá UFC eru opnar fer ég glöð yfir

Sunna Rannveig Davíðsdóttir sigraði Kelly D'Angelo í Kansas á laugardaginn og hefur því unnið alla bardaga sína sem atvinnumaður í MMA. Hún er með markmiðin á hreinu en leyfir sér að njóta augnabliksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×