Formúla 1

Bílskúrinn: Hamilton drottnaði á heimavelli

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton fagnar með áhorfendum eftir keppnina á Silverstone.
Lewis Hamilton fagnar með áhorfendum eftir keppnina á Silverstone. Vísir/Getty
Lewis Hamilton jafnaði met goðsagnarinnar Jim Clark með því að vinna sinn fimmta breska kappakstur á ferlinum á Silverstone um helgina. Hann minnkaði í leiðinni forskot Sebastian Vettel í heimsmeistarakeppni ökumanna niður í eitt stig.

Farið verður yfir allt það helsta úr breska kappakstrinum í Bílaskúrnum, uppgjöri hvers kappaksturs hér á Vísi.

Engum hömlum var komið á Hamilton um helgina.Vísir/Getty
Heimamaðurinn hömlulaus

Lewis Hamilton var á eldi eins og hann myndi segja, nema á ensku. Hann var á ráspól, leiddi alla hringina, átti hraðasta hringinn í keppninni og vann keppnina. Hann var gjörsamlega hömlulaus. Keppinautar hanns gátu engum böndum á hann komið. Þetta var fimmta skipti sem Hamilton vinnur á Silverstone brautinni. Hann er nú búinn að vinna fjórum sinnum í röð.

Hamilton fékk á sig mikla gagnrýni fyrir að láta ekki sjá sig á kynningarviðburði í miðborg Lundúna á miðvikudaginn í síðustu viku. Hann sagðist þurfa að kúpla sig út og vilja endurstilla sig fyrir breska kappaksturinn til að hafa fullkomna einbeitingu fyrir helgina enda væri titilbaráttan hans helsta forgangsmál. Hann hefur heldur betur svarað þessari gagnrýni með því að eiga tromp gegn öllum útspilum keppinauta hans um helgina.

Heimsmeistaramótið opnaðist eins og Pirelli dekkin undir Ferrari bílunum undir lok keppninnar.Vísir/Getty
Heimsmeistarakeppnin galopnaðist

Tvö sprungin framdekk skemmdu stigasöfnun Ferrari um helgina. Hún hefði að öllum líkindum orðið talsvert meiri ef allt hefði gengið eftir. Hins vegar sprengdu báðir Ferrari bílarnir vinstra framdekk á síðustu hringjum keppninnar. Kimi Raikkonen tókst að bjarga verðlaunasæti en missti annað sætið í hendur Valtteri Bottas á Mercedes.

Vettel varð öllu verr úti. Allt stefndi í hann næði í verðlaunasæti en svo kom skellurinn. Loftþrýstingurinn í vinstra framdekkinu féll skyndilega og hann þurfti að koma inn til að bjarga sér yfir marklínuna og þá var hann orðinn sjöundi og tapaði 19 stigum í baráttunni við Hamilton á þessum tveimur hringjum. Hamilton er því kominn aftur í grjótharða titilbaráttu. Bottas hefur líka komist í kallfæri við titilinn þegar tímabilið er hálfnað. Bottas er nú 23 stigum á eftir Vettel. Það er rétt að árétta að 25 stig fást fyrir fyrsta sæti. Lendi Hamilton og Vettel saman í Ungverjalandi eftir tæpar tvær vikur er ekkert ólíklegt að Bottas sigli heim 25 stigum. Það getur allt gerst í Formúlu 1.

Carlos Sainz gæti verið stórt púsl í ökumannsmarkaðnum í ár.Vísir/Getty
Ökumannsmarkaðurinn

Bottas, Carlos Sainz, Daniil Kvyat, Raikkonen og meira að segja Hamilton eru til umræðu um allan heim í mögulegri hringekkju sem fer á flug um mitt tímabil á hverju ári í Formúlu 1. Valtteri Bottas þykir afar líklegur til að halda sæti sínu hjá Mercedes en hann fékk eins árs samning til að byrja með en Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes hefur sagt að það sé nánast eina rökrétta framhaldið að framlengja við Bottas.

Carlos Sainz hefur heldur betur látið í ljós að hann ætli sér ekki að aka fyrir Toro Rosso liðið á næsta ári. Hann hefur verið orðaður við sæti Jolyon Palmer hjá Renault og það jafnvel strax eftir sumarfrí sem hefst eftir ungverska kappaksturinn sem fram fer aðra helgi. Daniil Kvyat gerði sér lítið fyrir og ók liðsfélaga sinn hjá Toro Rosso, Sainz úr keppni á Silverstone. Sæti hans er talið í hættu en hann hefur verið með eindæmum duglegur að koma sér í klandur á tíambilinu. Stemningin hjá Toro Rosso er ekki með besta móti.

Það er orðið næsta árlegur viðburður að spá í stöðu Kimi Raikkonen hjá Ferrari, verður hann með liðinu á næsta ári eða ekki? Hver veit, ekki gleyma að hann færði Vettel Mónakó kappaksturinn á silfurfati.

Nú segja sögurnar að Hamilton hafi sagt nánum vinum sínum, greinilega ekki of nánum ef satt er, að hann dreymi um að enda feril sinn í Formúlu 1 með Ferrari. Hann hefur þó sagt að hann muni heiðra samning sin og aka með Mercedes út 2018 hið minnsta.

Sprungin dekk neyddu báða Ferrari bílana í seinbúið þjónustuhlé.Vísir/Getty
Ítalir að eyðileggja fyrir Ítölum?

Stórfurðulegt drama kom upp á síðustu hringjum keppninnar um helgina. Báðir Ferrari bílarnir sprengdu vinstra framdekk á síðustu hringjum keppninnar.

Ítalski dekkjaframleiðandinn hafði ekki neinar sérstakar skýringar en sagði að það væru ólíkar skýringar fyrir því að dekkin misstu loft. Pirelli ætlaði þó að hefja rannsókn á málinu. Dekkin virtust eindaldlega missa loft og striginn undir gúmmíinu hreinlega flettast af. Ítalirnir hjá Pirelli voru ítalska bílaframleiðandanum verstir um helgina.

Valtteri Bottas er að vaxa í Mercedes bílnum og mun bara sækja á eftir því sem líður á tímabilið.Vísir/Getty
Ökumaður keppninnar

Valtteri Bottas fær þessa rós í hnappagatið fyrir keppnina í Bretlandi, að mati blaðamanns Vísis. Hann ræsti níundi eftir að hafa þurft að taka út fimm sæta bakfærslu á ráslínu vegna þess að skipta þurfti um gírkassa í Mercedes bíl hans.

Bottas er með þessum akstri búinn að stimpla sig duglega inn í baráttuna um heimsmeistaratitilinn og hann hefur verið drjúgur í stigasöfnun fyrir Mercedes.


Tengdar fréttir

Lewis Hamilton vann á heimavelli

Lewis Hamilton á Mercedes vann sinn fjórða breska kappakstur í röð í dag. Valtteri Bottas á Mercedes varð annar og Kimi Raikkonen varð þriðji á Ferrari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×