Íslenski boltinn

Björgvin og félagar sýndu enga miskunn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Björgvin (nr. 7) skoraði þrennu og lagði upp þess upp eitt mark.
Björgvin (nr. 7) skoraði þrennu og lagði upp þess upp eitt mark. vísir/andri marinó
Björgvin Stefánsson skoraði þrennu þegar Haukar unnu stórsigur á Leikni F., 5-0, á Gaman Ferða vellinum í Hafnarfirði í 9. umferð Inkasso-deildarinnar í dag.

Leikurinn var aðeins 22 sekúndna gamall þegar Björgvin kom Haukum yfir eftir sendingu frá Hauki Ásberg Hilmarssyni.

Á lokamínútu fyrri hálfleiks skoraði Arnar Aðalgeirsson annað mark Hauka eftir sendingu frá Björgvini.

Eftir tveggja mínútna leik í seinni hálfleik kom Haukur Ásberg heimamönnum svo í afar góða stöðu þegar hann skoraði þriðja mark þeirra.

Björgvin bætti svo tveimur mörkum við áður en yfir lauk. Hann hefur nú skorað sex mörk í Inkasso-deildinni, jafn mörg og Ivan Bubalo hjá Fram.

Haukar eru í 6. sæti deildarinnar en Leiknir í því ellefta og næstneðsta.

Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×