KR vann í Finnlandi og mætir Viðari Erni og félögum í næstu umferð

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Pálmi Rafn Pálmason skoraði fyrra markið.
Pálmi Rafn Pálmason skoraði fyrra markið. vísir/anton brink
KR er komið áfram í 2. umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA í fótbolta eftir glæsilegan 2-0 sigur á SJK Seinäjoen frá Finnlandi í seinni leik liðanna sem fram fór ytra í dag.

Fyrri leik liðanna lauk með markalausu jafntefli í vesturbænum þar sem KR var miklu betra liðið en í dag tókst lærisveinum Willums Þórs Þórssonar að nýta færin og koma sér örugglega áfram.

Markalaust var í hálfleik en Pálmi Rafn Pálmason kom KR yfir á 51. mínútu og danski framherjinn Tobias Thomsen gulltryggði sigurinn í leiknum og í einvíginu með öðru marki gestanna á 83. mínútu.

KR mætir næst ísraelska stórliðinu Maccabi Tel Aviv en með því leikur íslenski landsliðsframherjinn Viðar Örn Kjartansson sem var markakóngur í ísraelsku deildinni á síðustu leiktíð.

Fyrri leikurinn fer fram í Ísrael 13. júlí en sá síðari á Alvogen-vellinum 20. júlí.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira