Íslenski boltinn

Jón Aðalsteinn hættur hjá Fylki

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jón Aðalsteinn á hliðarlínunni með Fylki.
Jón Aðalsteinn á hliðarlínunni með Fylki. vísir/eyþór
Jón Aðalsteinn Kristjánsson sagði í dag upp starfi sínu sem þjálfari kvennaliðs Fylkis í knattspyrnu.

Jón Aðalsteinn tók við liðinu síðasta haust en ekki hefur gengið sem skildi hjá liðinu með hann við stjórnvölinn.

Í fréttatilkynningu segir að hann telji sig vera kominn á endastöð með liðið og því hafi hann hætt. Leit stendur yfir að eftirmanni hans.

Fylkir er í næstneðsta sæti Pepsi-deildar kvenna eftir tíu umferðir með aðeins fjögur stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×