Hafið tekur ekki endalaust við Björt Ólafsdóttir skrifar 22. júní 2017 07:00 Nýverið fór fram í New York hafráðstefna Sameinuðu þjóðanna (SÞ). Þar voru saman komnir leiðtogar heims í umhverfisvernd og málefnum hafsins til að ræða leiðir til að hrinda í framkvæmd heimsmarkmiði SÞ nr. 14, sem lýtur að því að vernda hafið og nýta auðlindir þess á sjálfbæran hátt. Undirrituð sótti ráðstefnuna ásamt sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, og undirstrikar það mikilvægi málefnisins fyrir Ísland og áhersluna sem ríkisstjórnin leggur á málið að tveir ráðherrar hafi tekið þátt í ráðstefnunni og ávarpað gesti hennar. Á ráðstefnunni var rætt um loftslagsbreytingar af mannavöldum og hvernig þær valda hlýnun og súrnun sjávar. Rannsóknir benda til þess að íshella suðurskautsins sé komin á það stig bráðnunar að erfitt verði að snúa við þeirri þróun. Ís norðurskautsins bráðnar einnig mjög hratt þar sem hlýnun þar er hraðari en á öðrum svæðum á jörðinni. Auk þess á sér stað mikil bráðnun Grænlandsjökuls. Þetta leiðir til hækkunar á sjávarborði sem gerir það að verkum að framtíð strandbyggða er mikilli óvissu háð. Þá setur súrnun sjávar alla fæðukeðju hafsins í hættu. Fyrir þjóð eins og Íslendinga sem byggir afkomu sína á sjávarfangi og þar sem byggð er víðast hvar við ströndina er þessi þróun mikið áhyggjuefni. Önnur ógn sem steðjar að heimshöfunum og fiskistofnunum er plastmengun í hafi. Gríðarlegt magn plastúrgangs berst í höfin og brotnar þar niður í örsmáar agnir, svokallað örplast, sem svo eru étnar af fiskum. Örplastið berst þannig ofar í fæðukeðjuna og í líkama okkar mannanna á endanum. Nú telja vísindamenn að eftir nokkra áratugi verði meira af plasti í hafinu en fiski. Í tengslum við ráðstefnuna hafa þjóðir heims, Ísland þar á meðal, tilkynnt um hvernig þær hyggist stuðla að því markmiði að vernda hafið.Stórt hagsmunamál fyrir Ísland Á ráðstefnunni var einnig hrint af stað átaki Umhverfisstofnunar SÞ gegn úrgangi í hafi, sem fengið hefur yfirskriftina #CleanSeas. Átakinu er ætlað að hvetja stjórnvöld, fyrirtæki og almenning til aðgerða sem stuðla að hreinni höfum og var Ísland m.a. ein þeirra þjóða á ráðstefnunni sem skrifuðu undir viljayfirlýsingu um að stefna að því að banna örplast í snyrtivörum. Í ávarpi mínu á ráðstefnunni gerði ég að umtalsefni hversu háðir Íslendingar eru náttúrunni og hafinu, þar sem fiskveiðar eru grundvallaratvinnuvegur þjóðarinnar. Jafnframt lagði ég áherslu á að íslensk stjórnvöld stefndu að því að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda á næstu árum með fjölþættum aðgerðum. Þær munu leggja lóð á vogarskálarnar í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og þar með hlýnun og súrnun sjávar. Heilbrigt haf er stórt hagsmunamál fyrir Ísland. Með markvissum aðgerðum og aukinni umhverfisvitund getum við sýnt gott fordæmi við að vernda hafið og nýta auðlindir þess á sjálfbæran hátt. Við þurfum að draga úr þeim úrgangi sem berst í hafið og minnka verulega losun gróðurhúsalofttegunda sem auka súrnun þess og hækka sjávarstöðuna. Því hafið tekur ekki endalaust við. Höfundur er umhverfis- og auðlindaráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Norskir herrar eða íslenskir? Þóra Bergný Guðmundsdóttir Skoðun Öll með? – 4.020 kr. hækkun fyrir skatt eftir 16 mánuði! Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Samt kýs ég Katrínu Jökull Sólberg Auðunsson Skoðun Góður forseti G. Pétur Matthíasson Skoðun Heimildin sem hvarf úr frumvarpi matvælaráðherra Vala Árnadóttir Skoðun Hagfræðin á Heimildinni Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Að mæðra barn í hjarta sínu Hólmfríður Anna Baldursdóttir Skoðun Átt þú rétt á sumarbústað? Unnur Hrefna Jóhannsdóttir Skoðun Vekjum risann Guðmundur Karl Brynjarsson Skoðun Mýtan um launin Elsa Nore Skoðun Skoðun Skoðun Góður forseti G. Pétur Matthíasson skrifar Skoðun Hvers vegna Halla Tómasdóttir? Guðjón Sigurðsson skrifar Skoðun Heimildin sem hvarf úr frumvarpi matvælaráðherra Vala Árnadóttir skrifar Skoðun Sníða sér stakk eftir vexti Guðni Magnús Ingvason skrifar Skoðun Norskir herrar eða íslenskir? Þóra Bergný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Af hverju ertu að bjóða þig fram? Sigurður Ragnarsson skrifar Skoðun Við styðjum Guðmund Karl! Katrín Valdís Hjartardóttir,Andrea Bóel Bæringsdóttir,Guðbjörg Harpa Ingimundardóttir skrifar Skoðun Hagfræðin á Heimildinni Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hreinleikaþráin Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Heimilisleysi blasir við öryrkjum Svanberg Hreinsson skrifar Skoðun Hvað getur Ísland gefið öðrum þjóðum? Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Veðrið, veskið og Íslendingurinn María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Að mæðra barn í hjarta sínu Hólmfríður Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Jákvæður orðaforði eykur hamingju og vellíðan Helga Fjóla Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Öll með? – 4.020 kr. hækkun fyrir skatt eftir 16 mánuði! Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Látum hjartað ráða för Sigrún Traustadóttir skrifar Skoðun Vekjum risann Guðmundur Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Katrín Jakobsdóttir forseti Viðar Pálsson skrifar Skoðun Þjóðarsátt líka fyrir fatlað fólk Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Í ker eða kistu Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Gummi Kalli er rétti kosturinn sem biskup Íslands Áslaug Helga Hálfdánardóttir,Dís Gylfadóttir,Guðni Már Harðarson skrifar Skoðun Gummi Kalli, einlægur, skemmtilegur og frábær leiðtogi Arnar Ragnarsson skrifar Skoðun Ræstingafyrirtæki og starfsmannaleigur í jafnréttisparadísinni Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Forysta til framtíðar Hópur presta skrifar Skoðun Fyrir hverja eru skoðanakannanir? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Án varna, ekkert frelsi Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Mýtan um launin Elsa Nore skrifar Skoðun Samt kýs ég Katrínu Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Viltu vera memm? Birna Dröfn Birgisdóttir skrifar Skoðun Tíminn að renna út Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Sjá meira
Skoðun Við styðjum Guðmund Karl! Katrín Valdís Hjartardóttir,Andrea Bóel Bæringsdóttir,Guðbjörg Harpa Ingimundardóttir skrifar
Skoðun Gummi Kalli er rétti kosturinn sem biskup Íslands Áslaug Helga Hálfdánardóttir,Dís Gylfadóttir,Guðni Már Harðarson skrifar