Netsendingum að utan fjölgaði um 60 prósent Haraldur Guðmundsson skrifar 23. júní 2017 07:00 Rekjanlegar sendingar eru að mestu vörur sem keyptar eru af netverslunum ?á borð við AliExpress og fataverslunum eins og ASOS. Fréttablaðið/Ernir
Sendingum frá erlendum netverslunum sem fóru í gegnum Íslandspóst fjölgaði um 60 prósent á fyrstu fimm mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Um 85 prósenta aukning var í fjölda rekjanlegra sendinga sem koma að stærstum hluta frá netverslunum í Kína og Evrópu. „Það er mjög mikið álag á öllum vígstöðvum hjá okkur. Við höfum verið og erum að leita að nýjum leiðum til að mæta þessu og þróast í takt við breytta tíma. Við höfum brugðist við með því að bæta við starfsfólki á öllum vígstöðvum. Svo vinnur starfsfólk okkar lengur bæði á næturnar og um helgar,“ segir Brynjar Smári Rúnarsson, forstöðumaður markaðsdeildar Póstsins. Að sögn Brynjars eru rekjanlegar sendingar að mestu vörur sem keyptar eru af netverslunum á borð við AliExpress og fataverslunum á borð við ASOS og Bohoo. Samkvæmt þeim upplýsingum sem Pósturinn hefur um sendingar sem berast ríkisfyrirtækinu er langmest keypt af fatnaði. Útlit er fyrir annað metár í afgreiðslu á vörum frá þessum fyrirtækjum og öðrum sambærilegum. „Við sjáum fyrir okkur áframhaldandi aukningu í náinni framtíð enda ekki útlit fyrir að þetta breytist á næstunni,“ segir Brynjar. Árið 2013 tvöfölduðust ábyrgðarsendingar frá útlöndum milli ára eða þegar vinsældir AliExpress náðu fyrst flugi. Pósturinn gefur ekki upp magntölur en segir að heildarmagn þessara sendinga hafi rúmlega sjöfaldast síðan 2012. Viðskiptin í dag séu ekki jafn bundin við kínversku netverslunina. Taka ber fram að önnur flutningsfyrirtæki en Pósturinn senda vörur hingað til lands. Fréttablaðið greindi í desember í fyrra frá því að sendingum hingað til lands frá erlendum verslunum til einstaklinga hefði fjölgað um 55 prósent á milli ára í nóvember 2015 og nóvember 2016. Þremur mánuðum síðar sagði hagfræðideild Landsbankans frá því að hringingar í þjónustuver Póstsins í júní í fyrra hefðu verið jafnmargar og í desember árið á undan eða í annamesta mánuðinum.
Mest lesið Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Vilja endurupptöku í máli Weinstein Erlent Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Innlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Vill hinn almenna launamann á þing Innlent Sinueldur í Munaðarneslandi Innlent Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Innlent Fleiri fréttir Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Sjá meira