Erlent

Fékk símtal frá syninum sem hann hélt að hann hefði fylgt til grafar

Stefán Ó. Jónssonu skrifar
Frank Kerrigan heldur á mynd af börnunum; John, Carole og Frank - sem eru öll enn á lífi.
Frank Kerrigan heldur á mynd af börnunum; John, Carole og Frank - sem eru öll enn á lífi. Vísir/AP
Karlmaður í Kaliforníu, sem hélt að hann hefði fylgt syni sínum til grafar, fékk símtal frá honum 11 dögum eftir útförina. Frá þessu er greint á vef Guardian þar sem segir að atvikið megi rekja til mistaka starfsfólks líkhúss bæjarins.

Maður fannst látinn aftan við verslun í Fountain Valley í suðurhluta Kaliforníu þann 6. maí síðastliðinn. Frank J. Kerrigan segist hafa hringt í líkhúsið þar sem honum var tjáð að líkið væri af syni hans, Frank M. Kerrigan, sem búið hefur á götunni og á við geðræn vandamál að stríða.

Þegar Kerrigan spurði hvort hann ætti að bera kennsl á líkið sagði starfsmaður líkhússins, ranglega, að fingraför gæfu til kynna að um son hans væri að ræða.

„Þegar einhver segir mér að sonur minn sé látinn og að þau séu með fingraför, þá trúi ég þeim,“ segir Kerrigan í samtali við Guardian. „Ef ekki hefði verið fyrir fingraförin þá hefði ég farið í líkhúsið á stundinni.

Tveggja milljóna útför

Sex dögum síðar héldu fjölskyldan útför sem Frank eldri segir að hafi verið íburðamikil og kostað um 20 þúsund dali, rúmlega 2 milljónir króna. Við útförina leit hann ofan í kistuna og strauk hár mannsins sem þar lá, sannfærður um að það væri sonur hans.

„Ég vissi ekki hvernig sonur minn myndi líta út,“ segir hann. 

Ellefu dögum síðar fékk Kerrigan símtal frá vini sínum.

„Sonur þinn er á lífi,“ sagði vinur hans áður en hann rétti syninum símann. „Halló pabbi,“ sagði hann við föður sinn.

Lögmaður fjölskyldunnar segir í frétt Guardian að starfsfólk líkhússins hafi ekki tekist að tengja fingraför hins látna við gögn í gagnagrunni lögreglunnar og hafi því reitt sig á gamalt ökuskírteini Kerrigans þegar borið var kennsl á líkið.

Þegar fjölskyldan tilkynnti lögreglunni að Kerrigan væri enn á lífi var aftur látið reyna á fingraförin. Kom þá í ljós að þau tilheyrðu öðrum manni. Ekki hefur þó enn tekist að bera kennsl á líkið. Líkhúsið hefur ekki viljað tjá sig um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×