G20: Löggur sendar heim eftir að hafa drukkið, dansað, pissað og stundað kynlíf í partíi Atli Ísleifsson skrifar 28. júní 2017 14:42 Partístandið virðist hafa hafist skömmu eftir að um fimm hundruð lögreglumenn frá Berlín mættu í skammtímahúsnæði sitt nærri Bad Segeberg. Vísir/EPA
Rúmlega tvö hundruð þýskir lögreglumenn, sem áttu að sinna öryggisgæslu í tengslum við leiðtogafund G20-ríkja í Hamborg í næstu viku, hafa verið sendir aftur til síns heima með skömm. Ástæðan er að það sást til lögreglumannanna í partíi í og fyrir utan húsnæði þeirra þar sem einhverjir stunduðu kynlíf utandyra og aðrir hópuðust að girðingu og pissuðu á hana. Lögreglan í Berlín birti í morgun yfirlýsingu á Facebook-síðu sinni undir fyrirsögninni: „Partílöggurnar í Berlín?“ og mynd með textanum „Mannleg“. Kemur þar fram að aðrir lögreglumenn verði sendir í stað þeirra sem brutu af sér og sendir aftur til Berlínar.Skammarlegt Thomas Neuendorf, talsmaður Berlínarlögreglunnar, segir það skammarlegt hvernig samstarfsmenn sínir hafi hagað sér. Partístandið virðist hafa hafist skömmu eftir að um fimm hundruð lögreglumenn frá Berlín mættu í skammtímahúsnæði þeirra nærri Bad Segeberg, norður af Hamborg, á sunnudag. Þýska blaðið BZ greinir frá því að tugir lögreglumanna hafi skemmt sér langt fram á nótt þar sem tveir lögreglumenn hafi stundað kynlíf við girðingu, lögreglumenn hafi pissað á girðingu og lögreglukona í slopp hafa dansað uppi á borði og veifað vopni sínu. Búist er við miklum mótmælum í tengslum við fund G20-ríkjanna sem stendur yfir dagana 7. og 8. júlí. Alls er búist við að um 20 þúsund lögreglumenn verði þar að störfum og sá lögreglan í Berlín um að útvega um þúsund.
Mest lesið Segja þrjá hafa kastast út úr rútunni Innlent Fólk sem ætlar að kjósa gegn Katrínu gæti lent í vandræðum Innlent Ræða mögulega við rútubílstjórann í dag Innlent Grunaður um kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni Innlent Ummerki um að vegurinn hafi gefið sig Innlent Segir veginn ekki hafa gefið sig Innlent Tók myndir af fólki á skemmtistað í leyfisleysi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þessi iðnaður er með meira eða minna allt niður um sig“ Innlent Segir róðurinn vera að þyngjast fyrir Ísraelsmenn Innlent Fleiri fréttir Átta á sjúkrahúsi eftir mikla ókyrrð 700 talin af vegna aurskriðu í Papúa Nýju-Gíneu Hamas skaut eldflaugum í átt að Tel Aviv Flytja hjálpargögn til Gasa í gegnum Kerem Shalom Tólf látin og tugir særð eftir árás á byggingavöruverslun Fjölda saknað eftir loftárás á byggingavöruverslun Halda áfram árásum á Rafah Hafnaði beiðni Baldwin um frávísun „Við munum vinna þennan slag“ Vilja banna snjallsíma fyrir yngri en 16 ára Segja Pútín vilja vopnahlé sem miðist við núverandi víglínur Sá sem át ekkert nema McDonalds í mánuð er fallinn frá Ísrael eigi að láta af öllum hernaðaraðgerðum í Rafah „Þetta setti af stað dómínó-áhrif út um allan heim“ Óttast um afdrif ríflega hundrað eftir aurskriðu Allsherjarsigur gegn Hamas ólíklegur Segir yfirlýsingar um að FBI hafi mátt skjóta Trump stórhættulegar Segir samstöðu lykilinn að jarðgangagerð Færeyinga Fjórir látnir eftir að bygging hrundi á Majorku Munu þurfa að afplána í Kósovó Skoða að leyfa árásir í Rússlandi með bandarískum vopnum Segja fiskiolíu geta aukið líkurnar á gáttatifi og heilablóðfalli Kínverjar æfa innrás á Taívan Níu létust á framboðsfundi Fjölskyldur birta myndskeið af blóðugum gíslum Hamas-liða Annar umdeildur fáni hékk við annað hús dómara Höfða mál gegn hundrað lögregluþjónum vegna árásarinnar í Uvalde Boðar til kosninga í Bretlandi í sumar Saka Rússa um að skapa ótta á Eystrasalti Mikill eldur í höfuðstöðvum Novo Nordisk Sjá meira