Körfubolti

KR-ingar fara í Evrópukeppni í fyrsta sinn í níu ár

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
KR-ingar hafa orðið Íslandsmeistarar undanfarin fjögur ár.
KR-ingar hafa orðið Íslandsmeistarar undanfarin fjögur ár. vísir/andri marinó
Íslands- og bikarmeistarar KR ætla að taka þátt í forkeppni FIBA Europe Cup næsta haust.

Fyrstu leikir verða heima og að heiman 27. september og 4. október en dregið verður í riðla þann 4. júlí næstkomandi.

Þetta er í fyrsta sinn síðan 2008 sem íslenskt félagslið tekur þátt í Evrópukeppni. Þá spiluðu KR-ingar við Banvit frá Tyrklandi.

KR hefur verið sterkasta lið landsins undanfarin ár. KR-ingar hafa orðið Íslands- og deildarmeistarar fjögur ár í röð og bikarmeistarar undanfarin tvö ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×