Enski boltinn

Pickford verður dýrasti markvörður Bretlands frá upphafi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jordan Pickford í leik með Sunderland.
Jordan Pickford í leik með Sunderland. vísir/getty
Sunderland hefur samþykkt 30 milljón punda tilboð Everton í markvörðinn Jordan Pickford.

Ef kaupin ganga í gegn þá verður Pickford dýrasti markvörður Bretlands frá upphafi. Aðeins Ederson og Gianluigi Buffon verða með hærra verðmiða af öllum markvörðum heims.

Hinn 23 ára Pickford sló í gegn með Sunderland á nýliðinni leiktíð. Þó svo liðið gæti ekki neitt þá varði hann eins og berserkur.

Það verður pressa á honum að standa undir þessum háa verðmiða næsta vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×