Lífið

Hátíðarsvæðið fimm þúsund fermetrum stærra í ár

Stefán Árni Pálsson skrifar
Undanfarin ár hefur verið góð stemning í Laugardalnum.
Undanfarin ár hefur verið góð stemning í Laugardalnum. vísir/hanna
Það hefur líklegast ekki farið framhjá neinum að tónlistarhátíðin Secret Solstice hefst í vikunni og fer hátíðin fram dagana 15.-18. júní.

Skipulag hátíðarsvæðisins gengur vonum framar en þar starfa starfa nú rúmlega 150 manns við að setja upp öll svið, bari, bekki og hvaðeina til þess að hafa hátíðina sem fullkomnasta fyrir gesti hennar þar sem opnunarhátíð Secret Solstice hefst á slaginu 18:00 næstkomandi fimmtudag. 

Tónlistarhátíðin hefur farið ört stækkandi síðan hún var gangsett árið 2014 en í fyrra seldust upp miðar á hátíðina daginn áður en hún fór fram í Laugardalnum. „Fólk þarf að hafa hraðar hendur ef það ætlar að ná sér í miða á hátíðina í ár,” segir Sveinn Rúnar Einarsson, einn af skipuleggjendum Secret Solstice.

Í ár verður Secret Solstice stærri en nokkru sinni fyrr þar sem skipuleggjendur hennar hafa bætt við heilum 5.000 fermetrum við hátíðarsvæðið til þess að skapa nóg pláss fyrir þær tónlistargoðsagnir sem boðað hafa komu sína. Ber þar helst að nefna Foo Fighters, The Prodigy, Rick Ross, Big Sean, Chaka Khan, Richard Ashcroft, Anderson .Paak, ásamt rjóma íslensku tónlistarsenunnar og 130 annarra listamanna.

Hér má sjá mynd af svæðinu í Laugardalnum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×