Sport

Háskólaleikmaður lést eftir erfiða æfingu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Heintz þótti vera efnilegur leikmaður.
Heintz þótti vera efnilegur leikmaður. mynd/twitter
Nýliði Kent State-háskólans, Tyler Heintz, lést í gær eftir æfingu með ruðningsliði háskólans.

Það var þrekæfing um morguninn og á henni hneig Heintz niður.

Hann var meðvitundarlaus er sjúkrabíll kom á svæðið og var svo úrskurðaður látinn er hann kom á sjúkrahúsið. Ekki er vitað um banamein hans.

Þetta sorglega atvik átti sér stað á aðeins öðrum degi æfingabúða skólans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×