Enski boltinn

Lindelöf orðinn leikmaður Man Utd

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lindelöf í búningi Manchester United.
Lindelöf í búningi Manchester United. vísir/getty
Manchester United hefur staðfest kaupin á sænska varnarmanninum Victor Lindelöf frá Benfica.

Hinn 22 ára gamli Lindelöf skrifaði undir fjögurra ára samning við United með möguleika á einu ári til viðbótar. Talið er að United hafi borgað rúmlega 30 milljónir punda fyrir Lindelöf.

„Ég er hæstánægður með vera kominn til Manchester United. Ég naut tímans hjá Benfica í botn og lærði margt þar,“ sagði Lindelöf í samtali við heimasíðu United.

„Ég hlakka til að spila í ensku úrvalsdeildinni á Old Trafford og fyrir José Mourinho. Ég er spenntur fyrir því að byrja og hjálpa liðinu að vinna fleiri titla.“

Lindelöf er fyrsti leikmaðurinn sem Mourinho fær til United í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×