Innlent

Ingveldur ráðin aðstoðarmaður Sigurðar Inga

Atli Ísleifsson skrifar
Ingveldur Sæmundsdóttir.
Ingveldur Sæmundsdóttir. Framsóknarflokkurinn
Ingveldur Sæmundsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Sigurðar Inga Jóhannssonar, formanns Framsóknarflokksins.

Í tilkynningu frá Framsóknarflokknum segir að Ingveldur hafi áður starfað sem aðstoðarmaður umhverfis- og auðlindaráðherra frá 2013 til 2017, fyrst Sigurðar Inga Jóhannssonar og síðar Sigrúnar Magnúsdóttur.

„Þá var Ingveldur kosningastjóri Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður og suður fyrir alþingiskosningarnar 2013.

Ingveldur er með B.Sc. próf frá Copenhagen Business School og diploma í alþjóðlegri markaðshagfræði frá Business Academy Copenhagen North. Þá stundar hún MBA nám við Háskóla Íslands.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×