Enski boltinn

Leicester nældi í Maguire

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Maguire var þrjú ár í herbúðum Hull.
Maguire var þrjú ár í herbúðum Hull. vísir/getty
Leicester City hefur fest kaup á varnarmanninum öfluga Harry Maguire frá Hull City.

Leicester borgaði 17 milljónir punda fyrir Maguire sem skrifaði undir fimm ára samning við félagið.

Hinn 24 ára gamli Maguire vakti athygli fyrir frammistöðu sína með Hull á síðasta tímabili en hann stóð fyrir sínu þrátt fyrir að liðið hafi fallið.

Maguire er uppalinn hjá Sheffield United og lék með liðinu til ársins 2014 þegar hann gekk í raðir Hull. Maguire lék alls 75 leiki fyrir Hull og skoraði þrjú mörk.

Leicester endaði í 12. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili og komst í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×