Innlent

Tveir fluttir á Landspítala eftir þriggja bíla árekstur á Norðurlandi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Slysið varð við afleggjarann að Laugarbakka.
Slysið varð við afleggjarann að Laugarbakka. mynd/loftmyndir
Þriggja bíla árekstur varð nú síðdegis á þjóðvegi 1 við afleggjarann að Laugarbakka á Norðurlandi. Tveir voru fluttir slasaðir með sjúkrabíl á Landspítalann í Reykjavík að sögn Sigurðar Jónassonar varðstjóra hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra.

Alls voru átta manns í fólksbílunum þremur, allt Íslendingar. Sigurður segir að betur hafi farið en á horfðist og að aðrir en þeir tveir sem fluttir voru til Reykjavíkur hafi sloppið ómeiddir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×