Enski boltinn

Fletcher á leið til Stoke

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Fletcher spilaði alla leiki West Brom í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Fletcher spilaði alla leiki West Brom í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. vísir/getty
Darren Fletcher, fyrrverandi leikmaður Manchester United, gengur til liðs við Stoke City í sumar. Sky Sports greinir frá.

Samningur Fletchers við West Brom rennur út um næstu mánaðarmót. Búist er við því að þá skrifi hann undir tveggja ára samning við Stoke sem endaði í 13. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í vetur.

Fletcher, sem er 33 ára, kom á frjálsri sölu til West Brom frá United í byrjun febrúar 2015. Fletcher lék alls 97 leiki fyrir West Brom og skoraði sex mörk.

Fletcher lék 342 leiki og skoraði 24 mörk fyrir United á árunum 2003-15. Leikirnir hefðu orðið mun fleiri ef ekki hefði verið fyrir erfið veikindi sem héldu Fletcher frá keppni í tvö ár.

Fletcher er fyrirliði skoska landsliðsins. Hann hefur leikið 78 landsleiki og skorað fimm mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×