Körfubolti

Fimmfaldur NBA-meistari handtekinn eftir að hafa velt bíl sínum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Derek Fisher og Gloria Govan.
Derek Fisher og Gloria Govan. vísir/getty
Derek Fisher, fimmfaldur NBA-meistari með Los Angeles Lakers, var handtekinn í gær eftir að hafa velt bíl sínum. Hann hafði glingrað við stút áður en hann settist undir stýri.

Kærasta Fishers, Gloria Govan, var með honum í bílnum. Þau sluppu bæði ómeidd.

Govan er fyrrverandi eiginkona Matt Barnes, leikmanns Golden State Warriors. Barnes var lítt hrifinn af því þegar þau tóku saman og réðist m.a. að Fisher í gleðskap fyrir tveimur árum.

Fisher átti farsælan feril í NBA sem lauk 2014. Hann lék lengst af með Lakers og vann fimm meistaratitla með liðinu.

Fisher var ráðinn þjálfari New York Knicks sumarið 2014 en var rekinn í febrúar á síðasta ári eftir slæmt gengi.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×