Körfubolti

Neymar þurfti að standa uppi á stól

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lewis Hamilton og Neymar.
Lewis Hamilton og Neymar. vísir/getty
Það var mikill stjörnufans í stúkunni á leik Golden State Warriors og Cleveland Cavaliers í úrslitum NBA-deildarinnar í nótt.

Meðal þeirra sem létu sjá sig í Oracle Arena í Oakland í nótt var brasilíski fótboltamaðurinn Neymar.

Hann sat að sjálfsögðu á fremstu röð með ökuþórnum Lewis Hamilton en þeim ku vera vel til vina.

Golden State vann leikinn 132-113 og er komið 2-0 yfir í úrslitaeinvíginu.

Eftir leikinn hitti Neymar svo Draymond Green, framherja Golden State, og fékk mynd af sér með honum. Talsverður hæðarmunur er á þeim en Neymar dó ekki ráðalaus og stóð uppi á stól þegar þeir stilltu sér upp fyrir myndatöku.

Hey bro ... whatsss uppp ? @money23green

A post shared by Njneymarjr (@neymarjr) on

NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×