Íslenski boltinn

Hjörvar fékk eins leiks bann

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hjörvar hefur verið einn sérfræðinga Pepsi-markanna síðan 2011.
Hjörvar hefur verið einn sérfræðinga Pepsi-markanna síðan 2011. vísir/vilhelm
Hjörvar Hafliðason, sparkspekingur í Pepsi-mörkunum og Messunni, var í dag úrskurðaður í eins leiks bann af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ.

Fjölmiðlamaðurinn góðkunni er markvarðaþjálfari HK. Hann var rekinn af varamannabekknum í 1-0 tapi HK fyrir Selfossi í 5. umferð Inkasso-deildarinnar á laugardaginn var. HK fékk einnig 15.000 króna sekt vegna brottvísunar Hjörvars.

Fjölnir fékk sömu sekt vegna brottvísunar liðsstjórans Einars Hermannssonar í tapi Grafarvogsliðsins fyrir Víkingi R. í gær. Einar var sömuleiðis úrskurðaður í eins leiks bann.

Fjölnismaðurinn Ægir Jarl Jónasson var úrskurðaður í eins leiks bann í Borgunarbikarnum vegna tveggja gulra spjalda. Sömu sögu var að segja af Gróttumanninum Halldóri Kristjáni Baldurssyni sem fékk að líta rauða spjaldið í 2-1 tapi Gróttu fyrir ÍA í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar.


Tengdar fréttir

Bubalo kramdi hjörtu Leiknismanna

Fram lyfti sér upp í 2. sæti Inkasso-deildarinnar með dramatískum 1-2 sigri á Leikni F. fyrir austan í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×