Húllumhæ beggja vegna Listagilsins á laugardag Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 8. júní 2017 10:45 Guð fær greitt í dollurum heitir þetta verk eftir Magnús Helgason.
Það frábæra við að auglýsa eftir þátttöku á svona stóra samsýningu er að maður uppgötvar alltaf eitthvað nýtt. Það koma inn verk frá myndlistarmönnum sem maður vissi ekki einu sinni að væru til,“ segir Hlynur Hallsson, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri, sem er í óðaönn að setja upp sýninguna Sumar í Ketilhúsinu. Þar eru verk af ólíkum toga, meðal annars málverk, skúlptúrar, ljósmyndir, vídeóverk og teikningar, eftir norðlenska listamenn, 21 talsins. Flestir eru með eitt verk en að hámarki þrjú.Line Orange Pile eftir Svövu Þórdísi Baldvinsdóttur Júlíusson.Auðvitað er skilgreiningaratriði hvað séu norðlenskir listamenn,“ segir Hlynur. „En ellefu þeirra sem sýna núna í Ketilhúsinu búa og starfa á Norðurlandi. Tíu búa annars staðar en starfa að hluta til hérna. Bergþór Morthens býr til dæmis í Gautaborg en er mikið á Siglufirði, kennir við Menntaskólann á Tröllaskaga og sýnir hér oft. Snorri Ásmunds er uppalinn hér þó fæstir tengi hann við norðlenska myndlist. Svo er Svava Þórdís fædd og uppalin á Siglufirði en fluttist til Kanada, lærði þar og starfar. Hún er með skúlptúra.“ Alls bárust yfir 100 verk sem fimm manna dómnefnd valdi úr. Hlynur segir þetta vera í annað sinn sem Listasafnið á Akureyri hafi það fyrirkomulag á undirbúningi sýningar. Hitt var haustið 2015. „Útkoman er þannig að úr verður sýning sem ekkert auðvelt er að raða saman – verkin eru svo fjölbreytt – en það er skemmtilegt verkefni. Síðast vorum við með verk eftir 30 listamenn en nú eru þeir 21 sem helgast af því að við stöndum í byggingarframkvæmdum í aðalrými listasafnsins og höfum bara Ketilhúsið nú. Fjöldi listamanna segir auðvitað ekki allt því verkin eru ólík að umfangi. Minnsta verkið er kannski 10x10 sentimetrar og við erum með innsetningu sem tekur um 20 fermetra. Svo eru vídeóverk og hlutfall milli málverka og skúlptúra kemur inn í þetta líka.“ „Útkoman úr svona söfnun er þannig að úr verður sýning sem ekkert auðvelt er að raða saman – verkin eru svo fjölbreytt – en það er skemmtilegt verkefni,“ segir Hlynur. Mynd/Auðunn NíelssonHlynur segir hugmyndina að svona sýningarhaldi eldgamla. „Haustsýningar eru enn víða haldnar í Evrópu, þar er úrval af því besta sem listamenn eru að fást við þá stundina og dómnefnd hefur valið.“ Sýningin Sumar verður opin í allt sumar. „Það verður mikið húllumhæ á laugardaginn því sýning þeirra sem ekki komust að verður líka opnuð í Deiglunni, hér hinum megin við götuna á vegum Gilfélagsins,“ segir Hlynur. „Hún heitir eitthvað á frönsku sem ég kann ekki að bera fram en þýðir: Sýning þeirra sem var hafnað.“ Sumar Listamennirnir sem taka þátt í sýningunni eru Aðalsteinn Þórsson Arnar Ómarsson Auður Lóa Guðnadóttir Auður Ómarsdóttir Árni Jónsson Bergþór Morthens Björg Eiríksdóttir Brynhildur Kristinsdóttir Erwin van der Werve Helga Björg Jónasardóttir Hertha Richardt Úlfarsdóttir Hildur Ása Henrýsdóttir Jónborg Sigurðardóttir Jónína Björg Helgadóttir Karl Guðmundsson Magnús Helgason Rebekka Kühnis Sara Björg Bjarnadóttir Sigríður Huld Ingvarsdóttir Snorri Ásmundsson Svava Þórdís Baldvinsdóttir Júlíusson
Menning Mest lesið Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Lífið Íslensk lopapeysa flutt milli heimsálfa vegna mestu eftirsjár ævinnar Lífið Tignarleg miðbæjaríbúð Helgu Ólafs til sölu Lífið Ofurskvísur landsins fögnuðu „Heiðarlegri“ fatalínu Heiðar Tíska og hönnun Frikki Dór er til í allt í þriðja skiptið Tónlist Breytti hænsnahúsi í verkstæði sitt Lífið Frikki fellir heimsmetið á miðnætti með Steinda jr. beran að ofan Tónlist Selur húsið í Garðabæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar Lífið Daði keypti hús Jóns Jónssonar með mömmu sinni á yfirverði Lífið Aníta Briem slær sér upp Lífið Fleiri fréttir Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Erna Ómars er borgarlistamaður Reykjavíkur „Svolítið eins og að standa nakinn inni í vita“ Líf og fjör á Grímunni Ást Fedru og Saknaðarilmur fengu fern Grímuverðlaun hver Margrét Helga hlýtur heiðursverðlaun Grímunnar „Leikmyndin er auðvitað algjört rusl“ Gríman 2024: Saknaðarilmur hlaut flestar tilnefningar Barbara Hannigan stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni Bergur Þór nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar Nóbelsverðlaunahafinn Alice Munro er látin Fjögurra ára rússíbanareið að baki Sjá meira