Körfubolti

Íslenska kvennalandsliðið í óvænta ferð til Írlands í morgun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Erna Hákonardóttir, til hægri, tók við báðum stóru bikurunum í vetur og endar tímabilið á því að spila sitt fyrsta landsleik.
Erna Hákonardóttir, til hægri, tók við báðum stóru bikurunum í vetur og endar tímabilið á því að spila sitt fyrsta landsleik. Vísir/Andri Marinó
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta hélt í morgun til Írlands í boði írska sambandsins og mun leika tvo vináttulandsleiki við landslið þeirra. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá KKÍ.

Íslenska liðið fékk silfurverðlaun á Smáþjóðaleikunum á dögunum, tapaði fyrsta leiknum sínum eftir martraðarferðalag en vann síðan hina tvo leikina. Liðið spilaði betur og betur með hverjum leik á leikunum.

Þrír leikmenn munu spila sína fyrstu landsleiki í ferðinni til Írlands og þar á meðal er fyrirliði Íslands- og bikarmeistara Keflavíkur, Erna Hákonardóttir.

Íslensku stelpurnar eru nýkomnar frá Smáþjóðaleikunum og verður þetta síðasta verkefnið þeirra þangað til í haust. Þá mun liðið æfa síðar í sumar á nokkrum æfingahelgum.

Ívar Ásgrímsson og Bjarni Magnússon eru þjálfarar í ferðinni og gerðu þeir fimm breytingar á hópnum frá Smáþjóðaleikunum.

Inn koma þær Erna Hákonardóttir, Dagbjörg Dögg Karlsdóttir, Ragnheiður Benónísdóttir, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir og Þóra Kristín Jónsdóttir. Þær sem hvíldar eru í staðin eru þær Birna V. Benónýsdóttir, Helena Sverrisdóttir, Sandra Lind Þrastardóttir, Sara Rún Hinriksdóttir og Ragna Margrét Brynjarsdóttir.

Þær Dagbjört Dögg, Erna og Þóra Kristín eru allar að leika sínu fyrstu landsleiki fyrir kvennaliðið.

Fyrri leikur liðanna verður í Cork á morgun föstudag og sá síðari í Dublin á laugardaginn.



Landslið Íslands gegn Írum - Júní 2017

Ragnheiður Benónísdóttir, Skallagrími

Hildur Björg Kjartansdóttir, Snæfelli

Hallveig Jónsdóttir, Val

Dagbjört Dögg Karlsdóttir, Val

Ingunn Embla Kristínardóttir, Grindavík

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Skallagrími

Thelma Dís Ágústsdóttir, Keflavík

Emelía Ósk Gunnarsdóttir , Keflavík

Salbjörg Ragna Sævarsdóttir, Keflavík

Þóra Kristín Jónsdóttir, Haukum

Erna Hákonardóttir, Keflavík

Berglind Gunnarsdóttir, Snæfelli

Þjálfari: Ívar Ásgrímsson

Aðstoðarþjálfari: Bjarni Magnússon

Styrktarþjálfari: Arnar Sigurjónsson

Sjúkraþjálfari: Silja Rós Theodórsdóttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×