Skoðun

Setjum hjartað í málið

Bubbi Morthens skrifar
Yngsta dóttir mín – hún er 5 ára – hrópaði upp yfir sig öðru hvoru „oh my goodness“ þangað til ég sagði henni að prófa að hrópa „guð minn góður“ í staðinn. Og viti menn: það virkaði. Þegar henni er mikið niðri fyrir hrópar hún hátt og snjallt „guð minn góður“!

Íslenskan á undir högg að sækja þessa dagana. Tölvur, snjallsímar, bíó og sjónvarp með enskuna að vopni brjóta niður varnir íslenskunnar án erfiðleika. Æ fleira ungt fólk í tónlistarheiminum kýs að syngja á ensku en sem betur fer kjósa margir enn þá að syngja og rappa á íslensku.

Heimurinn er ekki lengur stór. Hann er í raun ekki stærri en síminn í lófa þér. Þar gerist allt. Þar eru stjórntækin enskumælandi, leikirnir, textinn, allt er á ensku. Meðan íslenskan er að berjast fyrir lífi sínu í brimboðum enskunnar hafa menn slökkt á vitanum. Það sést ekki til lands. Æ fleiri fyrirtæki í græðgisbríma kasta íslenskunni. Í veitingahúsabransanum er það að verða þannig að þjónar tala ekki íslensku, matseðlar eru á ensku, staðirnir bera ensk nöfn. Í fjármálageiranum fara fyrirlestrar fram á ensku. Það nýjasta nýja er að Flugfélagi Íslands varð brátt í brók og skírði kúkinn Air Iceland Connect. Virðingin fyrir sögunni, arfleifðinni, tungumálinu var ekki meiri hjá þessu gamalgróna fyrirtæki.

Við verðum að snúa vörn í sókn

Nú er sjálf okkar, innsti kjarninn, rót menningar okkar að veði. Við verðum að snúa vörn í sókn. Það er mikilvægara að setja peninga í að íslenska tölvur en að grafa göng, svo dæmi sé tekið. Hvernig væri að hin ofsaríku útgerðarfyrirtæki, sem hafa mokað milljörðum upp úr hafinu árum saman, settu ásamt íslenskum stjórnvöldum peninga í það verkefni að bjarga íslenskunni?

Við verðum líka öll að vera vakandi heima fyrir, leiðrétta börnin okkar og okkur sjálf. Það er enn þá ort á íslensku, það er enn þá sungið á íslensku, enn þá eru skrifaðar bækur á íslensku, við tölum enn þá íslensku, fréttir eru sagðar á íslensku, en hversu lengi verður það þegar hvert fyrirtækið af öðru í borginni ber enskt nafn? Þó að ferðamenn komi hingað í áður óþekktum mæli þurfum ekki að gefa íslenskuna upp á bátinn.

Ég heyrði í útvarpinu um daginn viðtal við fólk frá Belgíu sem hafði verið á tónleikum með Ásgeiri Trausta. Hann er að túra um heiminn og eðlilega syngur hann að mestu á ensku. En fólkið sem var talað við kvartaði yfir því að hann hefði ekki sungið á íslensku. Ég heyrði að Ólafur Páll útvarpsmaður var jafn hissa og ég.

Enskan er komin á fullt í orðaforða barna okkar, fullorðið fólk slettir til hægri og vinstri, fréttafólk notar ensk orð í beinni í staðinn fyrir góð íslensk orð. Ég heyri vini barna minna nota enskuna svo mikið að það er verulegt áhyggjuefni. Við þurfum á íslenskunni að halda og íslenskan þarf á okkur að halda. Þú berð ábyrgð. Við berum ábyrgð á að tungumálið okkar lifi.

Setjum hjartað í málið.

 

Höfundur er tónlistarmaður.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×