Körfubolti

Stuðningsmenn Cleveland eru dónalegir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Green lætur Kyrie Irving, leikmann Cleveland, heyra það.
Green lætur Kyrie Irving, leikmann Cleveland, heyra það. vísir/getty
Hin skrautlega móðir Draymond Green, leikmanns Golden State Warriors, lenti í útistöðum við stuðningsmenn Cleveland Cavaliers eftir síðasta leik liðanna í úrslitum NBA-deildarinnar.

Mamman heitir Mary Babers-Green og er nú þekkt fyrir að vera ansi skrautleg. Kann þess utan að svara fyrir sig.

Eftir sigur Golden State í Cleveland fóru einhverjir tapsárir stuðningsmenn Cleveland að vera með stæla við hana.

Lögreglu þurfti til þess að róa mannskapinn og ef ekki hefði komið til hennar afskipta hefði líklega soðið upp úr.

Draymond var eðlilega ekki par hrifinn af þessari uppákomu og sagði einfaldlega: „Stuðningsmennirnir hérna eru dónalegir.“

Fjórði leikur liðanna fer fram í Cleveland í nótt og þá getur Golden State tryggt sér meistaratitilinn. Leikurinn hefst klukkan eitt í nótt og er í beinni á Stöð 2 Sport.

NBA

Tengdar fréttir

Tölurnar sýna að LeBron James ræður ekkert við Durant

Kevin Durant er búinn að vera frábær í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í ár og þá ekki síst í úrslitaeinvíginu á móti Cleveland Cavaliers. Það er ekki síst honum að þakka að Golden State Warriors er komið í 3-0 og vantar bara einn sigur í viðbót til að verða NBA-meistari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×