Körfubolti

Íslenskur sigur í Cork

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Erna Hákonardóttir (til hægri) lék sinn fyrsta A-landsleik í Cork í kvöld.
Erna Hákonardóttir (til hægri) lék sinn fyrsta A-landsleik í Cork í kvöld. vísir/andri marinó
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta bar sigurorð af því írska, 63-69, í vináttulandsleik í Cork í kvöld. Staðan í hálfleik var 28-27, Íslandi í vil.

Þetta var fyrri vináttulandsleikur þjóðanna en sá seinni fer fram í Dublin á morgun.

Erna Hákonardóttir, Dagbjört Dögg Karlsdóttir og Þóra Kristín Jónsdóttir spiluðu sinn fyrsta A-landsleik í kvöld.

Hildur Björg Kjartansdóttir var valinn maður leiksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×