Enski boltinn

Klopp á von á símtali frá svaramanni sínum sem kom Huddersfield í úrvalsdeildina

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jürgen Klopp og David Wagner eru miklir vinir.
Jürgen Klopp og David Wagner eru miklir vinir. vísir/getty
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, á von á símtali á næstu vikum frá David Wagner, knattspyrnustjóra Huddersfield sem í gær kom liði sínu upp í ensku úrvalsdeildina eftir vítaspyrnukeppni á Wembley í milljarðaleiknum á móti Reading.

Wagner var áður þjálfari varaliðs Borussia Dortmund þegar Klopp var þar aðalþjálfari en þeir eru bestu vinir. Wagner var til dæmis svaramaður í brúðkaupi Klopps.

Það er ýmislegt sem þeir félagarnir þurfa að ræða. Eitt málefnið er staða markvarðarins Danny Ward sem var hetja Hudderfield þegar hann varði spyrnu Jordan Obita í úrslitaleiknum í gær. Ward er á láni frá Liverpool.

„Ég þarf nokkrar vikur til að átta mig á öllu sem er að gerast. Eftir það verða símtölin nokkuð mörg sem ég þarf að taka. Ég mun hringja í Jürgen en ekki bara til að tala um Danny,“ sagði Wagner eftir leikinn í gær.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×