Handbolti

Löwen meistari annað árið í röð

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guðjón Valur fagnar einu fimm marka sinna í kvöld.
Guðjón Valur fagnar einu fimm marka sinna í kvöld. vísir/getty
Rhein-Neckar Löwen varð þýskur meistari í handbolta með stæl í kvöld er liðið pakkaði Kiel saman, 28-19. Löwen náði því að verja titil sinn.

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fimm mörk fyrir Löwen í kvöld og Alexander Petersson þrjú. Báðir hafa verið frábærir í allan vetur.

Bergischer tapaði svo enn einum leiknum er Melsungen kom í heimsókn. Lokatölur þar 26-28.

Hannover-Burgdorf sótti jafntefli á útivelli gegn HSC 2000 Coburg, 27-27. Rúnar Kárason skoraði þrjú mörk fyrir Hannover.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×