Körfubolti

Fjölskyldu Pachulia hótað

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Pachulia er ekkert sérstaklega vinsæll og hann veit af því.
Pachulia er ekkert sérstaklega vinsæll og hann veit af því. vísir/getty
Zaza Pachulia, leikmaður Golden State, er ekki sá vinsælasti í NBA-deildinni og ekki jukust vinsældir leikmannsins er hann átti sinn þátt í að Kawhi Leonard, leikmaður San Antonio, meiddist í fyrsta leik liðanna í úrslitum Vesturdeildar NBA-deildarinnar.

Leonard lenti á fæti Pachulia og snéri sig illa. Pachulia var sakaður um að hafa sett fótinn viljandi undir Kawhi en hann neitaði því. Leonard sagði sjálfur að þetta hefði ekki verið viljandi.

Leonard hefur misst af síðustu tveimur leikjum Spurs og Warriors og er tæpur fyrir fjórða leikinn í nótt. Hann er aðalmaðurinn í liði Spurs sem hefur fyrir vikið ekki átt möguleika gegn Warriors.

Svo reiður var Gregg Popovich, þjálfari Spurs, eftir að Leonard meiddist að hann líkti aðförum Pachulia við manndráp.

Pachulia er giftur þriggja barna faðir og fjölskyldu hans hefur verið hótað. Þær hótanir eru teknar alvarlega og öryggisverðir vakta börnin hans í skólanum.

„Ég vil nú ekki bara kenna Pop um allt saman en það sem hann sagði hafði áhrif. Því miður er ekki hægt að hafa áhrif á gáfnafar fólks,“ sagði Pachulia.

„Aðdáendur heyra skilaboðin frá þjálfaranum og halda að þeir megi þá haga sér eins og þeir vilja. Það er ekki rétt. Þeir mega alveg hóta mér en ekki hóta konunni minni og segja eitthvað ljótt um börnin mín. Það má ekki. Þetta kemur fjölskyldu minni ekkert við og það er óþolandi að hún þurfi að fá svona hótanir yfir sig.“

Staðan í einvígi liðanna er 3-0 fyrir Golden State sem getur tryggt sig inn í úrslitaeinvígið í nótt.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×