Enski boltinn

Messan: De Gea á ekkert heima í liði ársins

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Markvarðarumræðan var mjög hressileg.
Markvarðarumræðan var mjög hressileg.
„Eins mikill aðdáandi David de Gea ég er í dag þá átta ég mig ekkert á því hvað hann er að gera í liði ársins núna. Hann á ekkert heima þar,“ segir Hjörvar Hafliðason í Messunni en aðeins var tekist á um valið í lið ársins.

„Courtois var stórkostlegur og ein stærsta ástæða fyrir því að Chelsea varð meistari.“

Gummi Ben gaf lítið fyrir þessa skoðun Hjörvars og benti honum á að hann hefði aldrei valið hann í lið umferðarinnar í vetur.

„Kannski var hann bara alltaf næstbesti markvörðurinn í öllum umferðunum. Hann var frábær.“

Gummi og Bjarni Guðjóns þjörmuðu nokkuð hraustlega að Hjörvari en sjá má þessa skemmtilegu umræðu hér að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×