Körfubolti

Ósigraðir Golden State-menn komnir í úrslit

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Stephen Curry skoraði 36 stig fyrir Golden State.
Stephen Curry skoraði 36 stig fyrir Golden State. vísir/getty
Golden State Warriors tryggði sér í nótt sæti í úrslitum NBA-deildarinnar í körfubolta með 115-129 sigri á San Antonio Spurs í fjórða leik liðanna í úrslitum Vesturdeildarinnar.

Golden State vann einvígið 4-0 en liðið hefur unnið alla 12 leiki sína í úrslitakeppninni til þessa með 16,3 stigum að meðaltali. Þetta er þriðja árið í röð sem Golden State kemst í lokaúrslit NBA.

Stephen Curry skoraði 36 stig fyrir Golden State sem byrjaði leikinn af krafti og var með 12 stiga forystu, 19-31, eftir 1. leikhluta.

Kevin Durant skoraði 29 stig og tók 12 fráköst og Draymond Green var með 16 stig, átta fráköst og átta stoðsendingar.

Kyle Anderson skoraði 20 stig fyrir San Antonio sem lék án Kawhi Leonard í leiknum í nótt. Manu Ginobili skoraði 15 stig og gaf sjö stoðsendingar.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×