Enski boltinn

Burnley losar sig við Barton

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Joey Barton.
Joey Barton. vísir/getty
Vandræðagemsinn Joey Barton er án félags enn á ný eftir að Burnley ákvað að segja skilið við hann.

Barton kom til Burnley í annað sinn á ferlinum í byrjun janúar. Hann náði að spila fjórtán leiki fyrir félagið á leiktíðinni og skora í þeim leikjum eitt mark.

Þar áður var hann í herbúðum Rangers þar sem hann náði aðeins að spila fimm leiki áður en félagið lét hann fara.

Barton er orðinn 34 ára gamall og náði einum landsleik fyrir enska landsliðið. Þeir verða líklega ekki fleiri úr því sem komið er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×