Nefndin ætlar ekki að tvívinna það sem hefur þegar verið gert Sæunn Gísladóttir skrifar 24. maí 2017 07:00 Ásgeir Jónsson hagfræðingur er í forsvari fyrir nefndina. vísir/gva
Verkefnisstjórnin sem skipuð var í tengslum við endurmat peningastefnunefndar í mars er þegar byrjuð að funda með samráðs- og hagsmunaaðilum. Þetta staðfestir Ásgeir Jónsson hagfræðingur sem er í forsvari fyrir nefndina. Nefndin á að skila af sér tillögum í lok árs. „Við höfum þegar hafið samráðsferlið. Svo er verið að leita að erlendum sérfræðingum til þess að fara yfir íslensku peningastefnuna og skoða ýmsa möguleika,“ segir Ásgeir. „Í framhaldi munum við efna til umræðu um þessi mál með því að skipuleggja ráðstefnur og morgunfundi.“ Hann segir að nefndin muni síðan skila skýrslu og leggja fram tillögur. „Það hefur margt verið skrifað um íslenska peningastefnu. Þar bendi ég t.d. á ágæta skýrslu Seðlabankans frá 2012 um valkosti Íslands í gjaldmiðils- og gengismálum. Við ætlum ekki að fara að tvívinna það sem þegar hefur verið gert heldur reyna að setja þessi mál í greinargott samhengi og leggja fram skýrar tillögur.“ Ásgeir segist ekki geta sagt til um hversu róttækar tillögur nefndarinnar verði. Fréttablaðið greindi frá í gær að ekki yrði þrýst á nefndina að skila fyrr þrátt fyrir hörð viðbrögð forsvarsmanna atvinnulífsins við styrkingu krónunnar. „Krónan hefur nú verið að styrkjast í rúm tvö ár samfleytt. Það er bæði afleiðing núverandi peningastefnu sem og góðrar efnahagsstöðu landsins. Verkefnisstjórnin horfir til framtíðar og vart er hægt að búast við því að hún komi með tillögur í flýti vegna ástands sem ef til vill er aðeins tímabundið,“ segir Ásgeir.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Innlent Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Innlent Efstar með ómarktækan mun á milli sín Innlent Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Innlent „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Innlent Eldgosinu lokið eftir 54 daga Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Sjá meira