Erlent

Búðarþjófar stálu fyrir 91 milljarð

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Sælgæti freistar margra búðarþjófa.
Sælgæti freistar margra búðarþjófa. vísir/getty
Andvirði varnings sem stolið var úr verslunum í Svíþjóð í fyrra nam 7,9 milljörðum sænskra króna eða tæplega 91 milljarði íslenskra króna. Búðarþjófnuðum fjölgaði um 31 prósent milli 2013 og 2016. Í um fjórðungi tilfellanna eru það starfsmenn sem stela vörunum.

Mest er stolið af sælgæti, kjöti, snyrtivörum og raftækjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×