Fótbolti

Stelpurnar hennar Elísabetar unnu en landsliðsmarkvörðurinn er áfram á bekknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sif Atladóttir.
Sif Atladóttir. Vísir/Getty
Tvö Íslendingalið, Kristianstad og Limhamn Bunkeflo 07, fögnuðu sigri í sænska kvennafótboltanum í dag en landsliðsmarkvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir hefur ekki getað spilað í síðustu leikjum Djurgården sem tapaði 4-1 í dag.

Stelpurnar hennar Elísabetar Gunnarsdóttur í Kristianstad unnu langþráðan og mikilvægan sigur á Piteå í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Kristianstad vann leikinn 1-0.

Piteå var sjö sætum ofar í töflunni og Kristianstad hafði ekki unnið leik í næstum því mánuð. Þessi sigur var því ekki bara langþráður heldur sendu stelpurnar hennar Elísabet frá sér sterk skilaboð um að þær ætla sér meira en það sem liðið hefur verið sýna í byrjun móts.  

Hanna Sandström skoraði sigurmark Kristianstad á 58. mínútu leiksins. Sif Atladóttir lék allan leikinn í vörninni en Kristianstad var þarna að halda marki sínu hreinu annan leikinn í röð eftir að hafa markalaust jafntefli við Hammarby í síðasta leik.

Anna Björk Kristjánsdóttir og félagar í Limhamn Bunkeflo 07 unnu 2-1 útisigur á Hammarby en þetta var annar sigur liðsins í röð og sá þriðji í síðustu fjórum leikjum.

Anna Björk var allan leikinn í miðri vörn nýliðanna sem eru komnir upp í sjötta sæti deildarinnar.

Landsliðsmarkvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir sat áfram á varamannabekknum þegar Djurgården steinlá 4-1 á útivelli á moti Vittsjö. Hin 19 ára gamla Petra Kumin hélt stöðu sinni í markinu.  Guðbjörg er að glíma við meiðsli en var á bekknum.

Hallbera Guðný Gísladóttir var hinsvegar í liðinu og spilaði allan leikinn. Mia Jalkerud skoraði eina mark liðsns og minnkaði muninn þá í 3-1.

Finnska landsliðskonan Linda Sällström skoraði þrennu fyrir Vittsjö á fyrstu sextán mínútum leiksins.

Hallbera skapaði mörg færi með flottum hornspyrnum sínum en því miður skilaði ekkert þeirra marki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×