Erlent

Hékk á rúðuþurrkunum og kom í veg fyrir þjófnað

Melissa býður bílaþjófnum byrginn.
Melissa býður bílaþjófnum byrginn. Vísir/Skjáskot
Mannfólkið bregst mismunandi við undir álagi. Sumir frjósa á meðan aðrir láta vaða. Melissa Smith er ein þeirra sem greinilega lætur vaða.

Í myndbandi frá fréttastofu ABC má sjá Melissu sýna ótrúleg viðbrögð þegar ónefndur maður reynir að stela bíl hennar á bensínstöð í Wisconsin í dag. Í myndbandinu má sjá Melissu stíga út úr bílnum til að dæla bensíni á bílinn og nokkrum sekúndum seinna hleypur maður að bílnum hennar, sest undir stýri og hyggst keyra burt. Melissa var þó ekki tilbúin að gefast upp og stökk á framrúðu bílsins og ríghélt í rúðuþurrkurnar. Melissa lýsir því að þjófurinn hafi einfaldlega hlegið að þessu uppátæki hennar og á endanum gefist upp og flúið af vettvangi.

Melissa nefnir að hún hafi ekki hlotið skaða af en viðurkennir að þetta hafi ef til vill ekki verið besta ákvörðun hennar enda hefði þetta getað endað illa. 

Myndbandið má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×